Lýsing
Forðastautarnir eru hannaðir fyrir kálfa með virka vambarstarfssemi eldri en 6 vikna sem eru á bilinu 100-200 kg.
Forðastautarnir eru hannaðir til að hvíla í keppnum. Umbúðinar utan um forðastautinn fer í tvo hluta. Þeir eyðast og leysast upp og veita þannig samfellda gjöf af næringarefnum handa dýrinu.
Forðastautarnir eru með virkan líftíma í u.þ.b. 6 mánuði. Engar leifar verða eftir.
Ef við á skal forðast samhliða viðbótargjöf af aukaefnum með hámarksinnihaldi af öðrum uppruna en þeim sem er í forðastautinum.
Fyrir notkun er ráðlagt að fá ráðleggingar frá dýralækni eða næringarfræðingi varðandi:
- Jafnvægi snefilefna í daglegri gjöf.
- Stöðu snefilefna í hjörðinni.
Gjöf
Gefa á hverju dýri einn 58 g forðastut.
- Hlaðið inngjafarbyssu. Setjið forðastautinn í enda inngjafarbyssunnar.
- Setjið inngjafarbyssuna í munn dýrsins. Haldið dýrinu þannig að höfuðið vísi fram. Haldið hálsinum beinum. Setjð inngjafarbyssuna varlega beint í munninn (ekki frá hlið) og yfir aftari hluta tungunnar. EKKI nota mikla þvingun svo sem að grípa í tunguna , eða halda höfðunu of hátt. Ef forðastauturinn er brotinn (við gjöf) skal tryggja að ,,v“ endanum þrýstist ekki í kokið. Það truflar kyngingu.
- Forðastauti sleppt. Þegar dýrið byrjar að kyngja skal sleppa forðastautinum varlega. EKKI ýta inngjafarbyssunni of langt aftur í kok. EKKI nota afl þar sem það getur skaðað háls dýrsins.
MUNIÐ – AÐ SÝNA AÐGÁT ER AÐ GEFA SÉR TÍMA!