Lýsing
Alfa S-3 er súrt öflugt hreinsiefni fyrir lokuð mjaltakerfi. Alfa S-3 er ætlað til reglubundinna sýruþvotta. Alfa S-3 leysir upp ýmiskonar ólífrænar útfellingar, þ.m.t. mjólkurstein og er auk þess mjög virkt gegn fitu- og próteinleyfum. Alfa S-3 hefur sótthreinsandi eiginleika og inniheldur lágfreyðandi yfirboðsvirk efni. Alfa S-3 inniheldur ávaxtasýrur og er án ólífrænna sýra eins og brennisteins-, fosfór- og saltpéturssýru. Öll innihaldsefni Alfa S-3 brotna auðveldlega niður í náttúrunni samkvæmt prófum OECD (301A-E).
Notkun:
Eftir tæmingu röra og tanka skal strax skola út allar mjólkurleyfar með volgu vatni. Gangsetjið þvottavél. Ráðlagður notkunarstyrkur er 1-4%. Þvoið við allt að 85°c (árangurinn verður betri eftir því sem hitastigið er hærra). Sýruþvo skal a.m.k. á 8 daga fresti, en þó í samráði við mjólkureftirlitsmann.