Ofurgammur 5L

Ofurgammur 5L

5.595 kr. með VSK / 4.512 kr. án VSK

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8-319 Flokkur: Merki:

Lýsing

Dúndur/Ofurgammur er öflugt alkalískt kvoðuhreinsiefni fyrir matvælaiðnað. Dúndur/Ofurgammur myndar þétta og límkennda kvoðu sem loðir vel við lóðrétta fleti og er sérstaklega virk gegn fitu- og próteinleifum og leysir mjög vel um föst óhreinindi. Hentar t.d. vel í bolfisk-, uppsjávar- og rækjuvinnslur, sláturhús og kjötvinnslum hvers konar ásamt mjólkurstöðvum.

Notkun:

Við reglubundinn kvoðuþvott skal nota 3-5% blöndu, þ.e. 3-5 dl í 10 lítra af vatni. Vatnshitastigið takmarkast af aðgengi að heitu vatni og stærð rýmisins þar sem þrifin fara fram, því gufumyndun má ekki verða óhófleg. Virknitími kvoðunnar er 15-20 mínútur og skal bursta yfir erfiða bletti á meðan kvoðan er að virka sé þess þörf. Að virknitíma loknum skal háþrýstiþvo og skola ítarlega með hreinu vatni og á vatnshitastigið þá helst að vera undir 35°C, m.a. til að koma í veg fyrir að gufa birgi þrifafólki sýn. Hægt er að nota Dúndur/Ofurgamm óþynntan eða sterkar blöndur af honum á mjög erfið óhreinindi, s.s. í fiskimjölsverksmiðjum og loðnuskipum. Árangurinn verður betri eftir því sem vatnshitastigið er hærra.
Athugið að góð grófhreinsun fyrir kvoðun er forsenda þess að Dúndur/Ofurgammur nái að leysa sem mest um föst óhreinindi.