Klór 15% 10L

Klór 15% 10L

6.162 kr. með VSK / 4.969 kr. án VSK

Á lager

Vörunúmer: 8-350 Flokkur: Merki:

Lýsing

Klór 15% sótthreinsar, bleikir og eyðir lykt. Nýframleiddur Klór 15% inniheldur 12,5-15,0% virkan klór, þ.e. 152-183 g/l. Klórmagnið minnkar með tímanum, því natríumhýpóklórít brotnar niður og myndar natríumklórat og natríumklóríð. Klór 15% er mjög fljótvirkt sótthreinsiefni sem drepur gerla, sveppi og veirur. Klór 15% er notaður til sótthreinsunar í matvælafyrirtækjum, en einnig í þvottahúsum og í sundlaugar. Hafið í huga að klór er mjög tærandi og hentar því ekki til nota á hluti úr áli eða járni. Mjöll Frigg hf. er eini innlendi framleiðandinn af klór og er hann landsþekktur fyrir gæði sín.

Notkun:
Sé Klór 15% notaður við sótthreinsun í matvælafyrirtækjum er æskileg blöndun 0,3% (375-450 ppm virkur klór) og er þá gengið út frá því að tækjakostur sé úr ryðfríu stáli. Mjög mikilvægt er að vel sé þrifið áður en sótthreinsun hefst og allir fletir látnir þorna eins vel og mögulegt er áður en klórblöndunni er úðað á þá. Notkunarhitastigið er allt að 40°C. Sótthreinsiáhrifin vara stutt, t.d. vara sótthreinsiáhrif 100 ppm af virkum klór í 15 mínútur við 40°C og fyrir 200 ppm af virkum klór og sama hitastig er sótthreinsitíminn 10 mínútur. Í þvottahúsum og sundlaugum er skömmtunin með sjálfvirkum búnaði. Hafið í huga að blöndur af Klór 15% eru rokgjarnar og gufa tiltölulega fljótt upp og því ber að nota þær sem fyrst eftir að þær hafa verið blandaðar. Eftirfarandi jöfnu er hægt að nota til að reikna út magn Klórs 15% sem blanda skal í vatn til að öðlast klórblöndu af ákveðnum styrkleika: ml Klór 15% = (A x B) / (10 x C) þar sem A táknar þann lítrafjölda sem laga skal, B táknar klórstyrk blöndunnar í ppm og C táknar raunverulegan styrkleika Klór 15% (12,5-15,0%).