Lýsing
Hólakögglar er kögglaður fóðurbætir fyrir hesta sem framleitt hefur verið fyrir og í samvinnu við Háskólann á Hólum. Kögglarnir innihalda aukið prótein úr hágæða fiskimjöli.
1 kg/dag með heyi ætti að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Kögglarnir eru E-vítamín og bíótínríkir. Hentugt bíotín innihald eykur hóf- og hárvöxt til muna.
Ráðlagður dagskammtur:
0,5 kg/dag fyrir hross í miðlungs þjálfun.
1-1,5kg/dag fyrir hross í mikilli þjálfun.