Lýsing
Notkun
Ein flaska dugir í 100 tonn af gróffóðri. Innihaldinu er blanda við vatn í flöskunni og svo þynnt út í það magn sem á að nýta. Það er hægt að hafa íblöndunina frá 20 ml til 2 lítra á tonn af fóðri. Hefðbundin íblöndun (á milli 200 ml til 2 lítra/t)*: Setjið vatn í flöskuna og hristið til þess að blanda. Þynnið með vatni upp í það magn sem á að nota í tankinn við íblöndunina. Notið þynnta blöndu innan 2 daga. Mjög lítil íblöndun (20 ml/t)*: Setjið vatn í flöskuna og hristið til þess að blanda. Þynnið með vatni að 2 lítra markinu á flöskunni. Notið þynnta blöndu innan 2 daga. Einnig er mögulegt að nota það magn sem þarf á fyrsta degi en geyma svo í kæli (4°C) í allt að 10 daga. Hristið flöskuna þegar hún er tekin úr kælinum og notið samdægurs. *aðeins er mælt með að nota minna en 1 lítra/t íblöndun á sjálfvirk tæki.