Lýsing
Notkun og skammtar:
- 50 gr Diakur Plus blandast í 1 líter af mjólk eða vatn. Blanda vel saman og gefa strax. Blanda skal nýjan skammt við hverja gjöf, þ.e. ekki geyma afgangsblöndu á milli gjafa. Kálfarnir ættu einnig alltaf að hafa gott aðgengi að fersku vatni á milli gjafa.
- Fyrirbyggjandi – til að forðast skitu: Gefa 2 lítra (kálfur um 50 kg) eða 3 lítra (kálfur um 75 kg) við aðstæður sem valda álagi eins og breyting á umhverfisaðstæðum eða fóðurbreytingar.
- Kálfar með væga skitu: Gefa 2 lítra (kálfur um 50 kg) eða 3 lítra (kálfur sem er um 75 kg) 3 sinnum á dag í 1-7 daga eða þar til skitan er upprætt. Blanda skal í mjólk (hrámjólk eða kálfamjólk 50 gr í hvern lítra).
- Kálfar með mikla skitu: Gefa 2 lítra (kálfur um 50 kg) eða 3 lítra (kálfur um 75 kg) 3 sinnum á dag í 1-7 daga eða þar til skitan er upprætt. Blanda í volgt vatn eða mjólk (hrámjólk eða kálfamjólk) 50 gr í hvern líter.
Það kann að vera þörf á viðbótarmeðferð fyrir kálfa sem eru mjög illa veikir. Ef það sést engin árangur af meðferðinni eftir tvo daga ætti að ráðfæra sig við dýralækni.